Peptide 360 Serum
Andlitsserum sem vinnur gegn öldrun húðarinnar og gefur henni náttúrulegan ljóma.
Fyrir venjulega og þurra húð
Öflugt serum gegn öldrun sem hentar öllum húðgerðum og á hvaða aldri sem er. Háþróuð formúlan er stútfull af áhrifaríkri, náttúrulegri ofurfæðu sem verndar og endurnærir húðina og bætir húðlit, dýpt hrukka, áferð og ljóma.
Kostir:
- Vinnur á öllum merkjum öldrunar – línum, stinnleika og daufri húð
- Dregur úr fínum línum og hrukkum með náttúrulegum hátæknipeptíðum sem klínískt hefur verið sýnt fram á að auki stinnleika, dragi úr dýpt hrukka og slétti húðina
- Perúsk maca eykur ljóma og geislandi fegurð húðarinnar
- Bio-retinol úr cacay olíu styður við endurnýjun frumna, styrkir varnarlagið og læsir inni raka
Notkun:
Notaðu á undan rakakremi eða andlitsolíu. Berðu tvær pumpur á hreina húð og nuddaðu mildilega inn í andlit og háls. Fyrir bestan árangur skaltu nota serumið kvölds og morgna.
Varan er COSMOS lífrænt vottuð, vegan og cruelty free.
Innihaldsefni:
Aloe barbadensis leaf juice*, Aqua (water), Pentylene glycol (from sugar cane), Helianthus annuus (sunflower) seed oil*, Xanthan gum, Glycerin**, Hydrolyzed plukenetia volubilis seed extract, Lepidium meyenii (maca) root extract**, Sodium hyaluronate, Caryodendron orinocense seed oil, Citrus nobilis (Mandarin) peel oil expressed*, Vanilla planifolia fruit oil, Rosa damascena flower oil*, Sclerotium gum, Isoamyl laurate, lysolecithin, Pullulan, Maltodextrin**, Silica, Sodium benzoate, Tocopherol, Linalool, Limonene.
*Innihaldsefni úr lífrænni ræktun **Framleitt úr lífrænum hráefnum