NOURISHING HAIR ELIXIR
Fyrir allar hárgerðir
Fislétt hárserum með 100% náttúrulegum staðgengli sílíkons, sem skilur hárið eftir ótrúlega mjúkt, létt og rakamikið. Lífræn marókkósk arganolía, lífræn baobabolía og tahítísk Monoi olía eru sigurformúla til að temja úfið og stök hár. Olíurnar eru ríkar af andoxunarefnum, vernda hárið gegn áreiti úr umhverfinu og hjálpa því að endurheimta glataðan raka.
Kostir:
- Nærir hárið með náttúrulegum olíum sem eru ríkar af andoxunarefnum
- Gefur samstundis aukinn gljáa
- Dregur úr úfnu hári og temur stök hár
- Létt og sílíkonlaust – hárið verður mjúkt, létt og rakamikið
Notkun:
Settu 3–4 dropa í hreint hárið, blautt eða þurrt, frá miðju og niður í enda. Greiddu mildilega í gegn. Passar vel með náttúrulega sjampóinu frá Evolve.
Varan er COSMOS náttúrulega vottuð, vegan og cruelty free.
Innihaldsefni:
Isoamyl Laurate, Argania Spinosa (Argan) Kernel Oil*, Adansonia Digitata (Baobab) Seed Oil*, Cocos Nucifera (Coconut) Oil, Parfum (Naturally derived Fragrance), Gardenia Tahitensis Flower Extract, Citral, Citronellol, Geraniol, Limonene, Linalool.
*Innihaldsefni úr lífrænni ræktun