Kinnalitur fljótandi - Blush Bomb - 360 Candy Pink

Zao Makeup SKU: Z101360
Valkostur
Login to view prices

Leyfðu litunum njóta sín! Nýju litsterku kinnalitirnir frá Zao í fljótandi formi lífga upp á yfirbragðið með einni stroku. Formúlan er litsterk, endingargóð og rakagefandi, +aferðin er létt og blandast auðveldlega inn í húðina og gefur ferskt, ljómandi útlit.

Notaðu nokkra dropa til að auka litstyrkinn eða skapa náttúrulegra útlit, allt eftir því hvernig varan er borin á. Hægt er að nota litinn á kinnar, augnlok og varir til að leika sér með andlitsdrætti og skapa hátísku útlit þar sem sami liturinn er notaður á fleiri en einn stað.

 Blush Bomb fæst í þremur líflegum og heillandi litbrigðum:
360 Candy Pink: líflegur og kraftmikill bleikur litur fyrir skemmtilegt og djarft útlit.

361 Framberry: sterkur og áberandi hindberjableikur, fullkominn til að gefa húðinni samstundis heilbrigðan ljóma.
362 Peach Sorbet: mjúkur og ljómandi ferskju-litur sem gefur húðinni ferskleika og ljóma.

Snyrtivörurnar frá Zao koma í einstökum umbúðum úr lökkuðum bambus og eru því bæði falleg gjöf og vara sem vert er að eiga.

Helstu innihaldsefni:
Candelilla-vax: Hjálpar til við að auka endingartíma kinnalitsins.
Vaxið gerir það að verkum að liturinn festist vel við húðina, blandast auðveldlega og helst á allan daginn.
Kísill (Silica): Þetta innihaldsefni bætir áferð kinnalitsins og auðveldar notkun.
Kísillinn hjálpar til við að slétta áferð húðarinnar og draga úr glans, sem gefur mýkri og náttúrulegri áferð.
E-vítamín: Þetta andoxunarefni hjálpar til við að vernda húðina og formúluna sjálfa.
Það viðheldur ljóma húðarinnar og veitir henni þægindi og vörn í daglegri notkun.
Jojoba-olía: Gefur húðinni raka án þess að skilja eftir slikju á húðinni.
Hjálpar kinnalitnum að blandast betur við húðina og gerir hana mjúka og teygjanlega.

Þyngd: 10 gr.
Áfyllanlegt: Já

Innihaldslýsing:
BLUSH BOMB CANDY PINK 360 (F1): CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, C10-18 TRIGLYCERIDES, SILICA, CI 77891 (TITANIUM DIOXIDE), CANDELILLA CERA (EUPHORBIA CERIFERA (CANDELILLA) WAX), CI 45410 (RED 27 AL LAKE ), GLYCERYL BEHENATE (GLYCERYL BEHENATE), GLYCERYL ROSINATE, POLYGLYCERYL-3 DIISOSTEARATE, POLYGLYCERYL-4 CAPRATE, COPERNICIA CERIFERA CERA (COPERNICIA
CERIFERA (CARNAUBA) WAX)*, HYDROGENATED JOJOBA OIL, PARFUM (FRAGRANCE), LECITHIN, CI 15850 (RED 6 ), TOCOPHEROL, CI 77491 (IRON OXIDES), ASCORBYL PALMITATE, CITRIC ACID

96.8% OF THE TOTAL INGREDIENTS ARE OF NATURAL ORIGIN.

Lip Polish ZaoLip Polish Zao

Ask a question

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

More from Zao Makeup
More from Zao Make-up
Recently viewed