Handklæði sem eru handofin á tyrkneska mátann við vottaðar aðstæður. Dásamlega létt, fljót að þorna og taka lítið pláss, tilvalin í ferðalagið. Einnig falleg sem teppi, sjal, klútur eða borðdúkur.
Þvoið fyrir fyrstu notkun. Þvoið í þvottavél við 40 gráður. Handklæðið verður mýkra og rakadrægara með hverjum þvotti. Gott er að þurrka í þurrkara til hálfs og hengja svo upp. Notið ekki mýkingarefni.