Öryggisrakvél + standur Silver

Öryggisrakvél + standur Silver

Öryggisrakvél + standur Silver


Zero-waste og 100% plastlaus öryggisrakvél (e. safety razor) með tvöfaldri brún ásamt standi fyrir rakvélina. Í raksköfuna er sett eitt rakvélarblað í einu og skipt út eftir þörfum.

Mjög auðvelt er að skipta um rakvélarblað með því að skrúfa hausinn af og blaðið sett á milli og skrúfað aftur.

Skafan er með nettum haus og er létt, handfangið er langt og grannt með mjög grófri áferð/munstri sem gefur gott grip. Hentar öllum kynjum, hvort heldur andliti og/eða líkama.
Rakvélin er lífstíðareign ef farið er vel með hana.

Eitt rakvélarblað fylgir með rakvélinni. Fleiri fást hér: Rakvélablöð

Kostir plastlausra öryggisrakvéla:
Góður rakstur: Með öryggisrakvélinni næst rakstur nálægt húð án áreynslu.Inngróin hár, roði í húð og kláði heyra sögunni til. 
Endingargóð: Með góðri umhirðu er rakvélin nánast lífstíðareign enda úr hágæða hráefnum.
Umhverfisvænt: Það er nánast ógerningur að endurvinna einnota plastrakvélar, sérstaklega umbúðirnar. Eitt endurvinnanlegt rakvélarblað úr stáli er eina sem til fellur við notkun öryggisrakvéla. Kemur í endurvinnanlegum pappaumbúðum.
Hagkvæmt: Eftir að hafa keypt öryggisrakvél þarf einungis að kaupa rakvélarblöð.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

More from Rakvélar
Öryggisrakvél + standur Black
Bambaw
Öryggisrakvél + standur Silver
Bambaw
Öryggisrakvél + standur Rosegold
Bambaw
Öryggisrakvél Rosegold
Bambaw
Öryggisrakvél silfur
Bambaw
Rakvélablöð 5 stk í pakka
Bambaw
Recently viewed