BIO-RETINOL +C BOOSTER
Fyrir allar húðgerðir
Kraftmikill olíubooster fyrir andlitið sem bætir útlit daufrar og þreyttrar húðar og veitir henni þá næringu sem hún þarf til að ljóma. Fjórum öflugum vítamínum (A, C, F og E) er blandað í lífræna rósaberjaolíu, svo olían vinnur gegn öldrun, eykur kollagenframleiðslu og raka og gefur húðinni aukinn ljóma.
Kostir:
- Inniheldur bio-retinol úr bakuchiol og C-vítamín (Tetra) í einum booster
- Jafnar húðlit – bakuchiol hjálpar til við litabreytingar og rósaberjaolía styður við endurnýjun frumna án þeirrar ertingar sem hefðbundið retinól getur valdið
- Olíuleysanlegt og stöðugt C-vítamín (Tetra) eykur ljóma og birtu húðarinnar með því að draga úr melanínframleiðslu og styðja við kollagenframleiðslu
- Má blanda út í hvaða rakakrem eða serum sem er
Notkun:
Blandaðu 1–2 dropum út í rakakremið áður en þú berð það mildilega á hreint andlit og háls. Einnig má setja 1–2 dropa beint á hreina húð og nudda mildilega inn. Best er að nota boosterinn bæði kvölds og morgna.
Varan er vegan og cruelty free.
Innihaldsefni:
Caprylic/ capric Triglyceride*, Hippophae Rhamnoides (Sea Buckthorn) Fruit Oil*, Ascorbyl Tetraisopalmitate, Rosa Canina (Rosehip) Fruit oil*, Bakuchiol, Tocopherol, Parfum (Naturally derived fragrance), Helianthus Annuus Seed Oil.
*Innihaldsefni úr lífrænni ræktun