Brightening andlitsserumið gefur húðinni djúpa næringu og raka. Serumið vinnur vel á mislitri húð (þe. sólarskemmdir, ör og elliblettir).
Til að fá enn betri næringu og raka mælum við með að nota Frankin-Sense Divine andlitskremið með seruminu. Berið serumið á fyrst, leyfið þvi að fara inn í húðina, berið síðan kremið á húðina til að binda rakann. Serumið hefur andoxunaráhrif og er stútfullt af vítamínum og nauðsynlegum fitusýrum Samsetningin af ilmkjarnaolíunum er talin hafa góð áhrif á geðið og er ilmurinn ávanabindandi! Æðislegur og náttúrulegur ilmur - að minnsta kosti erum við Menudömur allar sammála með það!
Berist á hreint andlit, háls og augnsvæði fyrir nóttina. Varan er vegan.