Andlitsserum frá Awake Organics sem er sérstaklega gott fyrir húð sem á það til að fá bólur. Nærir og kemur jafnvægi á olíukennda og blandaða húð. Samsetningin er blanda af greipávexti, lavender, tea tree, rósmarín og patchouli og ilmurinn er eftir því.
Varan er pökkuð af A, C, E vítamínum og fitusýrum sem gefa raka og draga úr öramyndun. Vinnur á móti öldrun húðar. Varan er vegan.
Berist á hreint andlit, háls og augnsvæði fyrir nóttina.
Helstu innihaldsefni:
Lavender*, Tea Tree*, Patchouli*, Rosemary*, hafþyrnir (Sea Buckthorne), kvöldvorrósarolía*, greipávaxtaolía*.
*Lífrænt ræktað.
Inniheldur 20 ml