Multi bubble sápukúlusettið inniheldur sápukúlusprota til þess að gera margar stórar sápukúlur
100ml af þykkni fylgir, sem verður að 1Líter af vökva sem er sérstaklega gerður til þess að gera stórar sápukúlur.
Hægt er að kaupa Dr Zigs sápukúluþykkni á áfyllingarstöðinni okkar sem við mælum með að nota í risasápukúlurnar. Þykknið er sérstaklega gert til þess að búa til stórar kúlur og einnig niðurbrjótanlegt í náttúrunni.
Dr Zigs er margverlaunað fyrirtæki í sjálfbærum viðskiptum. Þau framleiða eiturefnalausar og umhverfisvænar sápukúlur og leggja sitt af mörkum til að breyta heiminum með slagorðinu ,,Bubbles not Bombs".