Amphora Aromatics - lífræn Ilmkjarnaolía Eucalyptus

Amphora Aromatics - lífræn Ilmkjarnaolía Eucalyptus

Amphora Aromatics - lífræn Ilmkjarnaolía Eucalyptus


Eucalyptus ilmkjarnaolían er hressandi og örvandi, góð til að losa nefstíflu og auðvelda öndun og hósta. Góð við flensueinkennum. Einnig hægt að nýta sem skordýrafælu.

Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni. 

Hægt er að nota ilmkjarnaolíu á ýmsa vegu, til innöndunar, í andlitsgufu, í bað og nuddolíu. Það er líka hægt að blanda nokkrum dropum í uppþvottalöginn, ryksuguna eða í þvottinn.

Til að fá frískandi ilm af þvottinum, til dæmis með þvottaskeljunum frá Living naturally sem við hjá Mena notum allar fyrir okkar þvott og bjóðum upp á hér á síðunni, þá er gott að setja nokkra dropa af olíunni í þvottavélina ásamt þvottaskeljunum.

Fyrir heimilisþrifin þá er til dæmis gott að setja nokkra dropa af olíunni í vatn og edik til að þurrka af eða skúra. Það má líka nota olíuna beint á klísturbletti (ekki samt á pússaðan eða unnin við og prófið alltaf fyrst á litlu svæði sem sést ekki).

Innihald 10 ml.


Olían kemur í lítilli glerflösku með dropaskammtara og tappa úr harðplasti.

HandgertVeganLifræntVistvaentNiðurbrjótanlegtÁn dýratilrauna

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

More from All
2-IN-1 SHUFFLEBOARD GAME
PlanToys
360 EYE & LIP CONTOUR CREAM
Evolve Organic Beauty
3D PUZZLE CUBE
PlanToys
40 UNIT BLOCKS
PlanToys
5512 40 Unit Blocks-Natural
40 UNIT BLOCKS - NATURAL
PlanToys
5 COLORS VEGGIE SET
PlanToys
Recently viewed